13.10.2010 | 14:29
A happy place
Uss það var ekki fallegt um að litast í speglinum í morgun, óttalega ræfilsleg þessi kona
Situr uppi með þetta þarna föla vannærða lúkk, mér hefur nú aldrei fundist það áhugavert. Sem sagt kvef pest í gangi, aftur, með tilheyrandi kulda og eymingjaskap.En lengi getur vont versnað, hlakka til að hitta þessa konu í speglinum í fyrramálið
Langar helst að flytja til Langtíburtistan, þar sem er heitt, þar sem ég gæti bara dinglað mér á ...... allan liðlangan daginn, legið í sólinni og drukkið mér til skemmtunar, nokkrar Margarétar 
á dag. I am thinking about a happy place, gerir maður það ekki þegar leiðin virðist seint ætla að liggja upp á við. En þar sem ég er ekki viss um að hægt sé að fá flug til áður nefnds Langtíburtistan og líklega ekki siglt þangað heldur, þá held ég víst bara áfram að vera ég, án sólarinnar og gleðidrukksins, drekk bara mitt kaffi og verð áfram, fjarska-falleg í speglinum á morgnana
Hitti annars mann um daginn, mikið andsk... svakalega geta nú sumir verið frambærilega sexy, hmm
Hef bara ekki séð svona sætan mann í mörg ár, en læt hann alveg eiga sig samt. Allt í lagi að horfa, óþarfi að vera að rífa hendurnar upp úr vösunum til að snerta
Hefði kannski átt að grípa í hrygginn á honum, svona eins og gert er við rollurnar, þegar menn velta því fyrir sér hvort þær séu setjandi á
Hmm var annars í klipp og lit, ferlega sæt skvísan, lét klippa mig sítt
Er bara góð, nammidagur, alla daga hérna megin, enda afmæli
Er með alveg slatta af gulrótum þessa dagana, allra litríkar og ávísun á sitthvað skemmtilegt
Over and out í bili 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.10.2010 | 11:48
Æts stubburinn :)
Bara svona smá húmor á þessum flotta degi
Maður þessi taldi það reyndar sína heilögu skyldu, að taka flestar konur nærri sér
Það var reyndar alveg furða hvað það gekk upp. Þetta var og er svo sem ekkert ómyndarlegur maður, bara svo óendanlega lítið heilbrigður á geði
Sá hann um daginn, hann er enn að leggja drög að næsta drætti hvar sem hann kemur
Og enn er hann að kenna konum um, helst allt sem upp kemur í kringum hann. Það er alltaf ein, sem er vonda konan. Og hún er notuð á hinar. Æts stubburinn
Konan sem hann er að plaga þessa mánuðina og vikurnar, heldur virkilega að hún sé eina konan í hans lífi
Að minnsta kosti þangað til hún fattar, aftur, að hann er löngu farinn að hugsa út fyrir rúmið hennar
Það hefur oft verið sorglegt að horfa upp á þetta, en ef hún er svona vitlaus, að sjá ekki að þetta breytist aldrei, þá á hún þetta líklega skilið
Bad Karma eller .....
Af mér sjálfri hmm, ég er góð, búin að vera pirruð yfir stöðu mála í kringum mig. Ætla ekki að eyða orku í það, heldur breyta því sem ég get breytt. Það gætu þurft að verða stórar breytingar, gæti orðið gaman bara. Ég átti flotta helgi, með næstum öllum mínum afleggjurum. Meira að segja komin ný dama í fameliuna, kannski heldur snemmt að kalla hana tengdadóttir. Virkilega indæl og sæt stelpa
Búðin mín á 20 ára afmæli þessa dagana
Og svoleiðis tímamótum fylgja afslættir, súkkulaði ( ég ætla ekki að borða það allt sjálf ) og fleira skemmtilegt. Haha ég veit ekkert af hverju ég skrifaði þetta hérna á undan um manngreyið, kannski er þetta kaflinn sem skrifaður er fyrir efasemda-konuna
Húkkers, ég er góð, lífið er ljúft og þá er bara að lifa því, lifandi
Over and out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.9.2010 | 13:42
Það þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig..............
smá vindur og vatn í Kef, ekkert til að sperra regnhlífina fyrir samt. Dagurinn lofar góðu, ég er búin að fá símtöl og heimsóknir frá mikið af fólki, gaman að því
Fékk tvö tilboð, sem ég gat alveg hafnað
en gerði að sjálfsögðu ekki
Óþarfi að loka sig alveg af sæta mín
Ég var að hugsa um allt þetta frábæra fólk sem ég hef kynnst í gegnum tíðina. Sumum hef ég kynnst í gegnum búðina, sumum á fundum og svo eru það þeir sem ég man bara ekki hvar eða hvernig, en eru hluti af mínu lífi. Einu sinni var ég td með manni, fínasti náungi. Hann átti systir eins og gengur og gerist. Hún var alltaf hlýlegri við mig en hann, segir sig sjálft hvort þeirra var eftir í mínu lífi
Svo eru það líka allir mínir fínu ættingjar. Þegar ég var í JC þá kynntist ég fullt fólki og þegar ég var flokksbundin...........manneskja
Sei nó mor
Ég var að gramsa í símanum mínum um daginn, henti út þessum ónauðsynlegu númerum sem þar voru. Sumir eru fluttir, aðrir því miður dánir og suma langar mig ekkert að hringja í
Suma langar mig að hringja í, en er ekki með númerin þeirra
reikna með því að símaskráin geti bjargað því, ef ég skyldi láta mér detta í hug að hafa samband. Ég var að rifja upp skemmtilegar minningar, frá nokkrum ferðum til Akureyrar í gegnum tíðina. Ótrúlega rómó sumt af því
og ekkert sem ég hef ástæðu til að sjá eftir, aldrei að sjá eftir neinu sem hefur komið mér til að brosa
Þau ævintýri verða samt ekki gefin upp hér, frekar en sagan um "sumar-nætur" í Skagafirði
Annars er ég bara góð og betri en best, lífið soldið krúttlegt þessa dagana
Eitt lítið bros getur gefið svo mikið, vitlaust að spara þau
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2010 | 13:32
Dragnót eða stöng?
Sem sagt ekki sama hvernig rolluskjátunni er slátrað. Ég verð nú að viðurkenna að ég hló svo mikið að ég bara tók ekki nógu mikið eftir, hvers vegna múslimum var komið inn í þessa frétt hjá RÚV. Líklega væntanleg markaðs setning í múslimalöndum, fyrir okkar fræga og þá vonandi rétt slátraða kindakjöt. Og viti menn, upp stóð maður sem gat fundið að þessu. Bara sisvona, hefur örugglega verið búinn að pæla þetta út í mörg ár. Hugsar örugglega um þetta þegar hann fer út að borða, hvernig ætli nautinu hafi verið slátrað, ætli einhver hafi rifið upp þessar kartöflur með látum
Skyldi þetta svín koma úr plastpoka, eða bréfi
Það er bara ekki í lagi með sumt fólk
Annars er allt flott að frétta héðan úr fásinninu, þeir rífast í bæjarstjórninni um hver sagði hvað og ekki hvað. Eru eiginlega komnir í hringi með vitleysuna og þá ekki í fyrsta sinn
Það er kalt í veðri, en hressandi að bíða eftir strætó á morgnana. Ég er mjög fegin að hafa lagt bílnum og byrjað að nota strætó og hjól, allt annað líf og mun heilsusamlegra. Snilldar líf sem ég lifi, með öllum sínum verkefnum og óvæntu uppákomum. Lífið er ljúft
og leikur við mig eins og venjulega. Enda fædd með gullskeið í munni og gaffal í bakinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2010 | 16:09
98 dagar til jóla :))
Það er vindur í Kef og sólin skín, yndislegt bara. Febrúar 2011 nálgast, er amk einum degi nær en í gær
Ég ætla ekki að byrja að telja niður alveg strax, en fljótlega
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil, skyldi maður verða leiður .....nei held ekki. Ég átti mér deit, í morgun, í vinnunni, hvað er nú það. Þetta er nú ekki rómantískasti staðurinn
en dugði ágætlega í þetta skiptið. Ég bauð honum kaffi, hann keypti með því og svo spjölluðum við lengi, hmm krúttlegt hvað
Ég veit kannski ekki alltaf hvað ég vil, en veit alveg hvað ég vil ekki. Ég vil ekki mann sem sýnir mér hroka, ég vil ekki mann sem heldur að hann sé betri en ég, ég vil ekki mann sem kemur ekki vel fram við fólkið mitt, ég vil ekki mann sem er montinn yfir engu ( skilji þeir sem vilja ) ég vil ekki mann sem er tilfinningalega heftur, ég vil ekki mann...........hmm eiginlega langar mig bara ekkert í mann, hvorki góðan né slæman. Ég bara hef ekki tíma til að standa í svoleiðis löguðu, ekki alveg núna. Kannski einn svona til hliðar
Eða er kannski ekki dömulegt að segja það, húkkers
Annars er ég bara góð, fékk stórskemmtilega konu í heimsókn í vinnuna áðan. Takk fyrir komuna Kristín, þú bjargaðir alveg deginum
Svo er það bókasafnið eftir vinnu og út að borða með skvísunni minni. Helli svo upp á fund hjá leynifélaginu í kvöld
Og svo, svo fer ég ..................
Kannski óþarfi að blaðra öllu
Lífið er ljúft bara að lifa því
Fullt af brosum legg ég á eldhúsborðið hennar mömmu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.9.2010 | 14:01
Í dag :)
og heilshugar deili einnig með þér.
Veldu það besta og brautin er greið
af bjartsýni ákveðum okkar leið.
Ég einnig get ákveðið leiðindalíf
langsótta fýlu og hvunndagskíf.
Það hvarflar ei að mér því hvert eitt val
er hvati á ferð um minn lífsins dal.
Veljum því saman sólskinsdal
í sálum okkar og gleðibrag.
Njótum tímans í núinu verum
þá næga gleði við öll uppskerum.
US
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.9.2010 | 14:27
Unglingadrykkja er ekki í lagi............
Skemmtileg rok-helgi að baki. Þetta varð alveg snilldarinnar helgi, þrátt fyrir smá rok og rigningu. Gaman að skoða sig um í bænum, sem var fullur af alls konar list og viðburðum ýmiskonar. Ég hitti fólk og meira fólk, borðaði góðan mat, fór á ball með Sylvíu og Ellen, gaman að því. Svo borðuðum við saman stelpurnar, Sylvía, Hanna, Ólafía, Ellen og ég. Samt svo skrítið, að þekkja svona fáa, en vita af svona mörgum. Snilld að hitta á Kristínu, svona alveg upp úr þurru, í rigningunni, inni á Duus
Svo var ég á Duus í gærkvöldi líka Jazz- blús mmmmm
Flensan er alveg að yfirgefa mig, er m.a.s farin að geta sofið á nóttunni. Og þá fer alveg að koma að syndasælunni trúi ég
Eða kannski er bara best að halda sig við súkkulaðið
Ég keypti mér svo sem engin ósköp þessa helgina "Hjálpræðisherinn" er með búð hérna niður í bæ, þangað fer ég örsjaldan. Þegar það gerist, þá fer ég alltaf hálf götótt út
Skil bara ekkert í því hvað sumu fólki getur verið illa við mig
eins og ég er nú "góð kona "
Ég eyddi smá pening þar inni, veit ekki hvort ég á að sjá eftir honum, eða ekki
Sylvía mín var ánægð með það sem hún keypti sér, það er nóg fyrir mig
Ég er stolt af stelpunni minni og enn stoltari þegar við gengum í gegnum bæinn á laugardagskvöldið. Rosalega sorglegt að sjá krakka niður í 14 ára og kannski yngri, drekkandi frá sér allt vit. Hvar foreldrarnir voru, veit ég ekki, sjálfsagt of uppteknir við að "skemmta sér" til að hafa tíma fyrir þessa krakka. Ég skil ekki af hverju unglingadrykkja er í lagi, á meðan engum er nauðgað og enginn er illa laminn. Mér finnst ekkert í lagi með þetta. Og það sem verra er sumir foreldrar kaupa virkilega áfengi ofan í börnin sín. Og hvernig þeir réttlæta það sumir, er bara næstum því fyndið og jafnframt sorglegt. Það er aldrei í lagi að kaupa áfengi handa þeim sem hafa ekki aldur til að nota það, svo einfalt hlýtur það að vera. Uss fer ekki lengra út í þetta, gæti misst mig í að segja eitthvað sem ég sæi alls ekki eftir, um að mínu mati mis-vitlaust fólk
Annars er ég góð, þakklát fyrir fjölskylduna mína. Þar á hver sitt, eins og gengur. Og allir að gera það sem þeir þurfa og vilja, sem er gott. Læt þessu lokið, fullt af brosum á ykkur letibloggarana
Over and so out
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.9.2010 | 11:13
Eymingi .........
Það er ég, en ekkert sem ekki má laga. Þegar ég verð orðin góð, þá verður lífið alger syndasæla. Því að þegar veikindin eru orðin mánaðarlöng, þá segir það sig sjálft að ég geri ekkert annað en að vera heima að reyna að ná henni ( heilsunni ) í lag. Ég fór til læknis í gær, beið eftir honum í einn og hálfan tíma. Það var alveg þess virði, þetta var maður á virðulegum aldri, ekki einhver nýskriðinn úr skóla. Sem hefði þá líklega sagt mér að flensan mín væri vírus, eða bara tennisolnbogi. Einn vinur minn lenti á slysó hérna um daginn, var með allt sem benti til þess að hann væri að fá hjartaáfall. Krakkinn sem tók á móti honum ákvað að hann væri með bakflæði
Og stóð við það þangað til annar eldri og reyndari skoðaði þennan vin minn líka og komst að réttri niðurstöðu. Það er eins og venjulega, ekki allt í lagi með Heilsugæsluna hérna. Annars er ég góð, Ljósanóttin að bresta á, sem þýðir að ég ætla að klæða mig vel og skottast niður í bæ,skoða helst allar myndlistarsýningarnar og handverkssýningarnar og hitt og þetta. Flugeldasýninguna ætla ég líka að sjá, en af svölunum heima, í þetta skipti, með kakó og næs. Fyrir utan búðina mína er stanslaus röð af grunnskólakrökkum, á leið til baka í skólann sinn. Þau eru að koma af setningu Ljósanæturinnar, við Myllubakkaskóla. Þar sem þau slepptu 2000 blöðrum. Og ég missti af því eins og venjulega
Sniðugt. Það er góður dagur í dag, ég ætla að nota hann í að skoða hvað ég get gert í minni syndasælu, þegar ég er laus við flensuna. Hmm dettur strax eitt í hug
Munum að eitt bros skaðar engan
Over and so out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.8.2010 | 10:53
Sumt fólk er bara fíbbl......
Það að konan skildi leyfa sér þetta, sýndi bara hversu óþroskaður einstaklingur hún er og kom ekkert við hvort það væri mikið að gera hjá henni eða ekki. Ég þekki fólk sem hefur mun meira að gera, er í td ströngu námi og vinnur með því, en öskrar ekki á börnin sín, heldur sýnir þeim virðingu og talar við þau, eins og þau séu líka fólk. Það er stór munur á að aga börn, eða arga á þau. Börn eru líka fólk og misjöfn eins og þau eru mörg. Ég á td litla skvísu sem er ákveðnari en margur annar. Til þess að hún viti hvað umhverfið samþykkir, þá þarf stundum að nota mikla staðfestu og leiða henni fyrir sjónir ýmislegt um orsök og afleiðingar. Ef henni er ekki kennt þetta smám saman, þá er hætta á að skellurinn verði ansi stór, þegar hún fer að fara meira út í veröldina þarna úti. Og það er jú á okkar ábyrgð, fullorðna fólksins að leiðbeina þeim fyrir lífið. Það er svakalega sorglegt að sjá til krakka, sem greinilega fá enga festu heima fyrir og þeim finnst bara eðlilegt að vaða yfir allt og alla. Og skilja svo ekkert í því að það vill enginn leika við þau, eða vera vinur þeirra til lengri tíma. Bara af því að pabbi og mamma nenna ekki að takast á við barnið sitt. Arg ég verð svo pirruð þegar ég hugsa um þetta. Þessi blessuð börn eru svo dýrmæt og einstök, hvert á sinn hátt. Og við erum jú bara með þau að láni, þangað til þau fara að heiman.Og hvað hana meinlausu mig varðar, ég ætla að halda áfram að vera bara ég. Og ef að fólki líkar það ekki, þá saknar þeirra enginn þegar það fer. Yfirgangur og hroki er með því ljótasta sem ég sé í fólki. Var einu sinni með manni sem sýndi mér svoleiðis oftar en einu sinni. Held að það hafi verið til að breiða yfir eigin skít bara. Svoleiðis fólk hefur ekki pláss í mínu lífi
Agalega gott að pústa svona út. Kannski heilsuleysi mínu að kenna að ég þarf þess, skiptir ekki öllu máli samt
Góður dagur í dag samt. Fékk krúttlegt símtal í morgunsárið
Over and out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2010 | 14:31
Ertu gift ???
Það hringdi í mig gömul vinkona, við hittumst fyrst þegar við vorum á unglingsaldri, sem sagt ungar og vitlausar
Snilldar skvísa myndi ég segja að þessi kona væri
Við töluðum um allt og ekkert og svo kom að því
Ertu gift ? Nei elskan, alveg hef ég nú látið það vera
Ertu þá í sambúð ? Nei elskan alveg er ég nú laus við það
Af hverju ekki ? Bara af því að ég hef ekki löngun til þess, líður bara ágætlega eins og ég hef það í dag
Það er ekki að gera neitt fyrir mig að vera í sambúð, enda ekki með manni þessa dagana
Nú af hverju ? Af hverju hvað elskan ? Af hverju ertu ekki með manni ? Það hefur enginn dottið við tærnar á mér, sem mér hefur litist vel á
Ha detta hvað ? Æi ég er að meina...eða tölum bara um eitthvað annað sæta
Hún er svo sem ekki ein um að skilja ekkert í mér, hvað eru þessar kellingar líka að pæla í mér, mér finnst þær ættu bara að passa upp á hjónabandið sitt. Og láta mitt hjónabandsleysi vera
Annars er ég bara góð og ógift, sagði svo sem aldrei að ég væri algerlega laus við allt sem heitir karlmenn. Það er alveg hægt að brúka þá til ýmislegs
Mér datt það snjallræði í hug, að reyna að fá tíma hjá lækni, beið í 35 mínútur í símanum og kvaldist undir lyftutónlist, arg er þetta hægt. Ég er alveg viss um að eitthvað skárra finnst
Ég væri meira að segja til í að hlusta Stormskerið, frekar en þetta
Og viti menn, mér var svarað, Þú færð tíma á fimmtudaginn, sagði nefmælta konan, sem ég virðist alltaf lenda á, mín heppni
Nei það gengur ekki elskan, á fimmtudaginn verð ég löngu dauð
Mér fannst ég ferlega fyndin, henni fannst ég ekkert fyndin
Annars er ég góð, vona að ég verði orðin betri til heilsunnar fyrir Ljósanæturhelgina. Stefnan er að taka virkan þátt í öllu sem þar er að gerast, gaman að því
Mitt líf er gott, það voru stórar ákvarðanir sem ég þurfti að taka, ég þurfti að losa mig við ýmislegt óæskilegt og það sem var mér til trafala. Það tókst, að sjálfsögðu
Mér tókst að minnka mína veröld og stokka upp í vina og kunningja hópnum, það varð svo sem ekki sársaukalaust, en þurfti bara að gerast. Það er ekki hægt að fórna tíma fyrir fólk sem stendur bara kyrrt og er ekki að gera neitt. Lífið er allt of stutt fyrir svoleiðis vitleysu.
Einhvern tíma hefði ég talið þetta til mikillar eigingirni hjá mér, en það er löngu liðin tíð
Fínt í bili, bros og gleði á eldhúsborðið hennar mömmu 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


ernadua
jokapje
jodua
tryggur
rannug
stafholt
skjolid
unns
ulli
kristin-djupa
heidamagg
dagny65
topplistinn
blues
ollana
bjornf
kaffikelling
perlaoghvolparnir
sigurjonsigurdsson



